1.7 C
Selfoss
Home Fréttir Blautir og kaldir á Fimmvörðuhálsi

Blautir og kaldir á Fimmvörðuhálsi

0
Blautir og kaldir á Fimmvörðuhálsi

Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt vegna tveggja ferðamanna sem halda til í tjaldi á Fimmvörðuhálsi en eru orðnir blautir og kaldir. Mikill vindur og úrkoma hefur verið á svæðinu í nótt og gengur nú á með slydduéljum, en veður fer batnandi. Björgunarsveitafólk er komið upp á Fimmvörðuháls og heldur á svæðið þar sem talið er að ferðamennirnir séu á vélsleðum.

Á sjötta tímanum í morgun var óskað eftir göngufólki af höfuðborgarsvæðinu verður það fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar úr Reykjavík.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.