5.6 C
Selfoss

Garðar ráðinn verkefnastjóri Unglingalandsmótsins í Þorlákshöfn

Vinsælast

„Við erum klár fyrir Unglingalandsmót í Þorlákshöfn og erum að ljúka við skipulagningu skemmtidagskrárinnar,“ segir íþróttafræðingurinn Garðar Geirfinnsson, sem nýverið tók til starfa sem verkefnastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ sem haldið verður í Þorlákshöfn um verslunarmannahelgina.

Bæjarbúar í Þorlákshöfn og framkvæmdanefnd Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK), sem er mótahaldari Unglingalandsmótsins að þessu sinni, hafa unnið að undirbúningi mótsins lengi. Garðar segir nær allt klárt. Dagskráin liggur fyrir og mannvirkin eru tilbúin.

„Það er rosalega gott að halda Unglingalandsmót í Þorlákshöfn. Þau sem komu hingað á Unglingalandsmót UMFÍ þegar það var haldið hér árið 2008 segjast hafa orðið hissa á því hvað aðstaðan var góð. Nú erum við búin að búa til strandblakvöll og frísbígolfvöllurinn er í smiðum,“ segir Garðar og lofar heilmiklu fjöri í Þorlákshöfn um verslunarmannahelgina.

„Án þess að ég fari nánar út í það þá verður hér þekktasta tónlistarfólk þjóðarinnar. Það er nefnilega svo gott að koma hér við áður en farið er út að troða upp á Þjóðhátíð í Eyjum,“ segir hann.

Unglingalandsmót UMFÍ var fyrst haldið 1992 en hafa verið haldin árlega um verslunarmannahelgi frá árinu 2002. Mótin hafa vaxið og sannað gildi sitt sem glæsilegar fjölskyldu- og íþróttahátíðir þar sem saman koma þúsundir barna og ungmenna ásamt fjölskyldum sínum og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá.
Unglingalandsmót UMFÍ er vímuefnalaus fjölskylduhátíð þar sem börn og unglingar á aldrinum 11–18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum. Samhliða er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Opnað verður fyrir skráningu á Unglingalandsmót UMFÍ í Þorlákshöfn 1. júlí næstkomandi.

Nýjar fréttir