1.1 C
Selfoss

Fjaran gengin í Pílagrímagöngunni

Vinsælast

Þriðja dagleið pílagrímagöngunnar frá Strandarkirkju heim í Skálholt verður farin sunnudaginn 24. júní. Lagt verður af stað með rútu kl. 9:30 frá Laugardælakirkju. Rúta flytur síðan hópinn þaðan á upphafsstað göngunnar og svo er gengið til áfangastaðar. Þátttakendur mæta því á áfangastað göngu og skilja bíla eftir þar.

Gengið er frá Eyrarbakkakirkju um 14 km leið með viðkomu í Kaldaðarnesi og árbakki Ölfusár þræddur í Selfosskirkju og síðan áfram í Laugardælakirkju undir leiðsögn sr. Halldór Reynissonar.

Ganga þarf frá greiðslu fyrir kl. 15 á föstudag fyrir ferð. Hver ferð kostar 3.000 kr. fyrir manninn. Gjaldið er fyrst og fremst fyrir rútubílinn. Fólk fer alfarið á eigin ábyrgð í þessa göngu, að öllu leyti.

Göngulag pílagrímsins er ganga inn á við inn, í sálina og hún er því helsti samferðarmaður pílagríma. Eitt er að fara af stað og ganga, en annað er að ganga í vitunarvakningu pílagrímsins og að valdefla hinn nýja mann sem fer á fætur hvern dag sem lifað er. Þessar ferðir gætu því komið að gagni við að temja sér breytt hugarfar og til að undirbúa sig undir pílagrímagöngur erlendis. Helgihald, kyrrð, samtal og að ganga með sjálfum sér, marka pílagrímagöngurnar, enda þarf hver lengst með sjálfum sér að fara. Allir eru velkomnir til þátttöku.

Skipuleggjendur á þessu þriðja ári göngunnar eru Suðurprófastsdæmi og Skálholt. Umsjónarmaður er Axel Á Njarðvík héraðsprestur og veitir hann frekari upplýsingar í síma 856 1574 eða axel.arnason@kirkjan.is. Skráning og frekari upplýsingar er að finna á www.pilagrimagongur.is.

Nýjar fréttir