-0.5 C
Selfoss

Sendiherra Póllands kom færandi hendi í Vallaskóla

Vinsælast

Sendiherra Póllands á Íslandi, Gerard Pokruszynski, kom ásamt eiginkonu sinni, Margherita Bacigalupo-Pokruszynska, færandi hendi í Vallaskóla í liðinni viku.

Hjá sendiráðinu hefur það vakið hrifningu að Vallaskóli er einn fárra skóla hér á landi sem kennir pólsku og er kennslan í umsjón Anetu Figlarska sem einnig er ráðgjafi í kennslu tvítyngdra barna hjá skólaþjónustu Árborgar. Helmingur allra tvítyngdra barna í leik- og grunnskólum Árborgar eru af pólskum uppruna og því er mikilvægt að geta sinnt kennslunni vel og allri þjónustu við hópinn enda er kennslan í Vallaskóla í boði fyrir alla nemendur af pólskum uppruna.

Gerard Pokruszynski, sendiherra Pállands, afhendir bókagjöf. Mynd: Vallaskóli.

Gerard og Margherita færðu hverju barni bókagjöf, auk þess sem Vallaskóli fékk að gjöf pólskar námsbækur. Auk nemenda sóttu foreldrar, kennarar og fulltrúar sveitarfélagsins samkomuna sem var með hátíðarblæ. Eftir athöfn í sal var boðið upp á hressingu í mötuneytinu.

Random Image

Nýjar fréttir