-0.6 C
Selfoss

Sérútbúinn viðbragðsbíll verður á Þingvöllum í sumar

Vinsælast

Þann 1. júní síðastliðinn var undirritaður samningur um bætt viðbragð neyðaraðstoðar í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Verkefnið felur í sér að Heilbrigðisstofnun Suðurlands staðsetur sérútbúinn viðbragðsbíl ásamt sjúkraflutningamanni á dagvakt í þjóðgarðinum. Sjúkraflutningamaður mun sinna útköllum innan þjóðgarðsins er varða öryggis- og viðbragðsmál, þar á meðal útköll vegna slysa, sjúkdóma eða önnur atvik sem koma geta upp í þjóðgarðinum. Viðvera þjónustunnar miðast við dagvakt alla daga en sá tími er fjölfarnasti tími ferðamanna á Þingvöllum.

Fyrir utan að sinna neyðaraðstoð þegar hennar er þörf verður einnig aukin kennsla til starfsmanna þjóðgarðsins í skyndihjálp. Að auki mun HSU koma að gerð öryggis- og viðbragðsáætlunar fyrir þjóðgarðinn í samstarfi við Almannavarnardeild lögreglunnar og Lögreglustjórann á Suðurlandi.

Samningurinn er hugsaður til framtíðar en er gerður til reynslu fyrir sumarið 2018 og gildir frá 1. júní til 1. október.

Random Image

Nýjar fréttir