2 C
Selfoss

Yfirlýsing frá sveitarstjórn Rangárþings eystra vegna fatlaðs einstaklings

Vinsælast

Sveitarstjórn Rangárþings eystra fer með rekstrarlega ábyrgð á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Kirkjuhvoli. Sveitarstjórn hefur þar engar faglegar forsendur til að grípa inn í einstök mál skjólstæðinga. Vegna mjög viðkvæms málefnis fatlaðs einstaklings sem hefur um 11 ára skeið verið þar heimilismaður hafa stjórnendur Kirkjuhvols og sveitarstjórn notið ráðgjafar Margrétar Tómasdóttur sem er talsmaður sjúklinga sem og annarra sérfræðinga. Athugun umræddra sérfræðinga hefur leitt í ljós að Hjúkrunar- og dvalarheimilið Kirkjuhvoll, hafi á þessum tímapunkti ekki forsendur til þess að sjá um aðhlynningu og vistun umrædds einstaklings svo að öryggi hans verði tryggt. Hins vegar er stefnt að því að heimilið geti tekið við ummönnun mannsins í framtíðinni og mun sveitarstjórn styðja við bakið á stjórnendum stofnunarinnar svo það geti orðið.

Að gefnu tilefni skal einnig skýrt tekið fram að sveitarstjórn stýrir ekki heldur hverjir fá búsetuúrræði á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Kirkjuhvoli, það gerir sérstök Heilsu- og færnimatsnefnd sérfræðinga á vegum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.

Nýjar fréttir