9.5 C
Selfoss

Framboðslisti Miðflokksins í Árborg kynntur

Vinsælast

Miðflokkurinn í Árborg hefur kynnt framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Í tilkynningu segir að listinn samanstandi af fólki sem hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum, félagsmálum og úr atvinnulífinu. Á framboðslistanum er fólk sem er fætt á svæðinu og uppalið; fólk sem er nýflutt í sveitarfélagið og fólk af erlendum uppruna.

Listann skipa eftirtalin:

  1. Tómas Ellert Tómasson, byggingaverkfræðingur og verkefnastj. hjá Reykjavíkurborg, Selfossi
  2. Guðrún Jóhannsdóttir, viðskiptafr. og fyrrv. sveitarstj.fulltrúi í Dalabyggð
  3. Solveig Pálmadóttir, B.s. í viðskiptalögfræði og hársnyrtimeistari, Selfossi
  4. Ari Már Ólafsson, húsasmíðameistari, Selfossi
  5. Erling Magnússon, lögfræðingur, Selfossi
  6. Sverrir Ágústsson, félagsliði á réttargeðdeild LSH, Selfossi
  7. Arnar Hlynur Ómarsson, bifvélavirki, Selfossi
  8. Ívar Björgvinsson, vélvirki, Stokkseyri
  9. Jóhann Rúnarsson, starfsmaður Sólningar, Selfossi
  10. Jón Ragnar Ólafsson, atvinnubílstjóri, Selfossi
  11. Arkadiusz Piotr Kotecki, starfsmaður BYKO, Selfossi
  12. Jóhann Norðfjörð Jóhannesson, stýrimaður og byssusmiður, Selfossi
  13. Birgir Jensson, sölumaður, Stokkseyri
  14. Sólveig Guðjónsdóttir, starfsmaður Sv.f. Árborgar, Selfossi
  15. Sigurbjörn Snævar Kjartansson, verkamaður, Selfossi
  16. Guðmundur Marías Jensson, tæknimaður og form. Stangaveiðifél. Selfoss, Selfossi
  17. Hafsteinn Kristjánsson, bifvélavirki, Selfossi
  18. Guðmundur Kr. Jónsson, heiðursform. HSK og fyrrv. bæjarfulltrúi, Selfossi

 

 

Nýjar fréttir