7.3 C
Selfoss
Home Fréttir Kostnaðarsamt að aka of hratt

Kostnaðarsamt að aka of hratt

0
Kostnaðarsamt að aka of hratt

Í liðinni viku voru 39 ökumenn kærðir fyrir að aka ökutækjum sínum of hratt á Suðurlandi. Tveir þeirra mældust á 147 km/klst hraða þar sem leyfður hraði er 90 km/klst og „sleppa“ með 130 þúsund króna sekt og sviptingu ökuréttar í einn mánuð fyrir brot sín.

Með gildistöku nýrrar reglugerðar um sektir og önnur viðurlög vegna umferðarlagabrota sem tók gildi 1. maí hækkaði þessi sekt í 210 þúsund krónur (og svipting í einn mánuð). Sama á við um mörg önnur brot sem til umfjöllunar eru í almennu umferðareftirliti. Eru ökumenn eindregið hvattir til að spara sér útgjöldin með því að aka eftir umferðarlögum. Allt er þetta gert til að skapa umferðinni aðhald og draga úr umferðarslysum.

Skráningarnúmer voru tekin af tveimur ökutækjum sem reyndust í umferð án gildra trygginga. Sekt við slíku broti er nú 50.000 krónur en þessir tveir falla inn á „gömlu reglugerðina” og fengu því 30.000 króna sekt fyrir brotið.

Einn er grunaður um að hafa ekið bifreið sinni ölvaður og annar undir áhrifum fíkniefna, báðir sömu nóttina, aðfaranótt 28. apríl, annar á Eyrarbakkavegi en hinn í uppsveitum Árnessýslu.

Slökkvilið var kallað að fangelsinu á Litla–Hrauni að kvöldi 28. apríl sl. en þar kom upp eldur í fangaklefa. Ekki urðu slys á fólki og er málið til rannsóknar hjá lögreglu.

Í eftirliti með farþegaflutningum við Jökulsárlón og þar í kring voru þrír aðilar kærðir fyrir að stunda farþegaflutning í atvinnuskyni án þess að hafa til þess rekstrarleyfi. Viðkomandi var gert að hætta akstri og fær sekt fyrir meint brot.

Úr dagbók lögreglunnar á Suðurlandi.