1.7 C
Selfoss

Menningarviðurkenningar afhentar í Árborg

Vinsælast

Sveitarfélagið Árborg afhenti menningarviðurkenningu Árborgar 2018 og samfélagsviðurkenningu á afmælistónleikunum í íþróttahúsi Vallaskóla 18. apríl sl. Þetta árið hlutu þrír einstaklingar menningarviðurkenninguna en það voru þau Sigurður Jónsson, listamaður og fyrrverandi kennari, Rannveig Anna Jónsdóttir, í Konubókastofu og Elfar Guðni Þórðarson, listmálari.

Hljómsveitin Kiriyama family, sem fékk samfélagsviðurkenningu Árborgar 2018, ásamt Kjartani Björnssyni og Söndru Dís Hafþórsdóttur..

Við sama tilefni var hljómsveitinni Kiriyama family veitt samfélagsviðurkenning fyrir þeirra störf með hvatningu um áframhaldandi velgengni enda ung hljómsveit sem er að gera það gott erlendis.

Fulltrúar sveitarfélagsins þau Sandra Dís Hafþórssdóttir, Gunnar Egilsson og Kjartan Björnson afhentu viðurkenningarnar á velheppnuðum afmælistónleikum í íþróttahúsi Vallaskóla miðvikudaginn 18. apríl sl.

(Frétt af arborg.is)

Nýjar fréttir