4.5 C
Selfoss

Íþróttahúsið í Þorlákshöfn stækkað

Vinsælast

Undirritun samnings, um stækkun íþróttahússins í Þorlákshöfn, fór fram í íþróttamiðstöð Þorlákshafnar, föstudaginn 13. apríl sl. Trésmíðar Sæmundar ehf. og Garpar ehf. munu vinna verkið og voru það fulltrúar frá þeim ásamt Gunnsteini Ómarssyni bæjarstjóra sem undirrituðu samningana. Jafnframt var fyrsta skóflustungan tekin að nýrri byggingu.

Einnig var undirritaður samningur við Garpa ehf. um gerð nýrra heitra potta við sundlaugina. Vinna við þá er hafin og er áætlað að þeir verði tilbúnir til notkunar í sumarlok.

Nýjar fréttir