1.7 C
Selfoss

Ölfus komst í undanúrslit í Útsvarinu

Vinsælast

Lið Sveitarfélagsins Ölfuss tryggði sér sæti í undanúrslitum Útsvarsins síðastliðið föstudagskvöld. Ölfus keppti við ógnarsterkt lið Seltjarnarness, sem skipað var þeim Karli Pétri Jónssyni, Sögu Ómarsdóttur og Stefáni Eiríkssyni. Ölfus hafði sigur 62-56.

Keppnin var æsispennandi og má segja að úrslitin hafi ekki ráðist fyrr en eftir síðustu spurningu Seltyrninga, en svarrétturinn fór yfir til Ölfusinga sem náðu að komast einu stigi yfir með réttu svari um sendling.

Lið Ölfuss skipa þau Árný, Hannes og Magnþóra.

Nýjar fréttir