0.3 C
Selfoss

King‘s Voices með tónleika í Skálholtsdómkirkju á pálmasunnudag

Vinsælast

Á morgun Pálmasunnudag, 25. mars kl. 20:00, verður boðið upp á einstaka kórtónleika í Skálholtsdómkirkju. King‘s Voices er blandaður háskólakór frá hinum virta háskóla í Cambridge. Kórinn er heldur upp á 20 ára afmæli frá stofnun hans en hann var stofnaður skólaárið 1997/1998. Þá var ákveðið að bæta við blönduðum kór í skólann þar sem konur gætu loks fengið tækifæri til taka þátt í aldagamalli aftansöngs hefð í King‘s College. Fram að því voru einungis karla- og drengjaraddir sem sungu sópran og alt raddir í kórnum. Mjög sterk hefð er fyrir aftansöng í kapellu King‘s Callege og hefur staðið frá 16. Öld. Mörg af þekktustu tónskáld sögunnar hafa skrifað tónlist sérstaklega fyrir Kapelluna í King‘s College.

Skálholtskórinn mun einnig koma fram á tónleikunum og syngja kórarnir nokkur lög saman meðal annars hið víðfræga lag Þorkells Sigurbjörnssonar, Heyr himnasmiður sem var reyndar frumflutt í Skálholti. Einnig hið undurfagra verk Locus iste eftir A. Bruckner. Svo syngja kórarnir hvor í sínu lagi fjölbreytta efnisskrá.

Með kórnum kemur einnig fram organistinn Edward Reeve sem er 22 ára gamall. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann haldið fjölda tónleika sem píanóleikari, semballeikari, organisti og sem hljómsveitarstjóri. Edward hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir framúrskarandi árangur. Stjórnandi King‘s Voices er Ben Parry. Stjórnandi Skálholtskórsins er Jón Bjarnason. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og er þetta einstakt tækifæri til þess að fá að heyra í King‘s Voices í fögrum hljómi Skálholtsdómkirkju.

Random Image

Nýjar fréttir