0.3 C
Selfoss

Bensínfóturinn þyngist með hækkandi sól

Vinsælast

Með hækkandi sól þyngist bensínfóturinn oft verulega hjá sumum ökumanna í umferðinni. Í liðinni viku voru 50 ökumenn kærðir fyrir að aka of hratt í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi. Hraðast ók bandarískur námsmaður á ferðalagi sínu austan Víkur á 158 km/klst hraða. Á svipuðum slóðum var annar ferðamaður, frá Hong Kong, stöðvaður og mældist hraði bifreiðar sem hann ók vera 150 km/klst. Alls eru 42 þessara mála komin í farveg. Álagðar sektir vegna þeirra nema 1.800.000 króna og renna þær til ríkissjóðs til góðra verka.

Ökumaður og farþegi fólksbifreiðar slösuðust þegar bifreið þeirra lenti út af veginum um Skeiðarársand þann 13. mars sl. Báðir voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík, annar með höfuðáverka en hinn minna meiddur. Fram kom í máli ökumanns að hann hafi ekki sofið í 36 tíma fyrir slysið en ætlunin hafi verið að upplifa sem mest af Íslandi í stuttri ferð. Hann kvað af og frá að hann hafi sofnað við akstur bifreiðarinnar í umrætt sinn.

Ökumaður fjórhjóls í Þykkvabæjarfjöru slasaðist þegar hann fór of harkalega af stað, prjónaði og fékk hjólið yfir sig með þeim afleiðingum að hann öklabrotnaði. Slysið átti sér stað þann 17. mars sl. Sá var fluttur á sjúkahús til aðhlynningar.

Ökumaður sem stöðvaður var við akstur utan vegar á Breiðamerkursandi þann 18. mars lauk máli sínu með greiðslu sektar að upphæð 50.000 krónur. Ekki urðu umtalsverðar gróðurskemmdir af akstri þessum en bíllinn sat fastur og þurfti ökumaðurinn að leita sér aðstöðar við að ná honum lausum af vettvangi.

Ökumaður fólksbifreiðar sem stöðvuð var á Suðurlandsvegi, við Áshól, að kvöldi 17. mars sl. reyndist ölvaður. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð á Selfossi en sleppt að yfirheyrslu lokinni.

Úr dagbók lögreglunnar á Suðurlandi.

Random Image

Nýjar fréttir