7.1 C
Selfoss
Home Fréttir Söngkeppni Árborgar haldin í annað sinn

Söngkeppni Árborgar haldin í annað sinn

0
Söngkeppni Árborgar haldin í annað sinn
Flott tilþrif í Söngkeppni Árborgar í fyrra.

Söngkeppni Árborgar verður haldin í annað sinn á Hótel Selfossi föstudaginn 9. mars næstkomandi. Um er að ræða keppni milli fyrirtækja þar sem keppt er um besta atriðið og besta stuðninginn.

„Við fórum af stað með þessa keppni í fyrra og komust færri að en vildu. Alls tóku tíu fyrirtæki þátt og seldust allir miðar í forsölu,“ sagði Sigríður Ósk Harðardóttir framkvæmdastjóri Söngkeppni Árborgar. „Í ár verður keppnin með svipuðu sniði og gerum við ráð fyrir að stútfylla hótelið eins og í fyrra því nú þegar eru nokkur fyrirtæki búin að skrá sig til þátttöku.“

Keppt er um glæsilegan farandgrip en handhafar hans eru Selfossveitur sem sigruðu í fyrra með glæsilegum flutningi. Allur ágóði af keppninni í fyrra fór til Dagdvalar Vinaminnis og Árbliks.