5.4 C
Selfoss

Stuðningsnet sjúklingafélaga stofnað

Vinsælast

Stuðningsnet sjúklingafélaganna er nýr vettvangur fyrir jafningjastuðning fyrir þá sem hafa greinst með sjúkdóm og aðstandendur þeirra. Að Stuðningsnetinu standa fjórtán hagsmunasamtök sjúklinga á Íslandi og fleiri eru væntanleg til samstarfsins.

Stuðningsnetið styðst við aðlagað vinnuferli og námsefni frá Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk sem greinst hefur með kabbamein og aðstandendur þeirra. Opnaður hefur verið vefur og haldin þrjú námskeiði sem um 30 stuðningsfulltrúar frá ólíkum félögum hafa sótt. Opið er fyrir ný sjúklingafélög að koma að Stuðningsnetinu hvenær sem er.

Stuðningsfulltrúar geta þeir orðið sem sjálfir greinst hafa með svipaða sjúkdóma eða eru aðstandendur. Stuðningsfulltrúar skrifa undir trúnaðaryfirlýsingu og fá þjálfun í að veita stuðning. Starfsmenn Stuðningsnetsins halda svo utan um endurgjöf og eftirfylgd með hverju stuðningsverkefni, og stuðningsfulltrúar hljóta viðeigandi handleiðslu og símenntun.

Stofnfundur Stuðningsnets sjúklingafélaganna var haldinn 18. janúar sl. í Hásal Setursins, Hátúni 10b Reykjavík. Birgir Jakobsson landlæknir flutti opnunarávarp á fundinum.

Formleg starfsemi Stuðningsnetsins hófst strax að loknum stofnfundi og gefst þá almenningi kostur á að nýta sér þjónustu Stuðningsnetsins gegnum vef þess studningsnet.is.

Nýjar fréttir