7.3 C
Selfoss
Home Fréttir Jólabækurnar til umræðu á bókasafninu

Jólabækurnar til umræðu á bókasafninu

0
Jólabækurnar til umræðu á bókasafninu
Jón Yngvi Jóhannsson bók­mennta­fræðingur og lektor við HÍ.

Bókabæirnir austanfjalls bjóða upp á fróðlega og skemmtilega umfjöllun um jólabækurnar í þessari viku. Jón Yngvi Jóhannsson bók­mennta­fræðingur og lektor við HÍ kemur á bókasöfnin í Ölfusi, Selfossi og Hveragerði og ræðir um bækurnar sem komu út fyrir þessi jól.

Jón Yngvi er líka listakokkur og skrifaði m.a. bók sem heitir „Hjálp, barnið mitt er grænmetisæta!“ Jón Yngvi verður í Bóka­safni Ölfuss í Þorlákshöfn í kvöld mið­viku­daginn 17. janúar kl. 20, í Bókasafni Árborgar Selfossi á morgun fimmtudaginn 18. janúar kl. 17:30 og í Bókasafninu í Hvera­gerði sama dag þ.e. fimmtudaginn 18. janúar kl. 20. Allir eru velkomnir.