7.1 C
Selfoss

Sveitarfélögin í Rangárvallasýslu gera samning við Hestamannafélagið Geysi

Vinsælast

Miðvikudaginn 27. desember sl. voru undirritaðir samstarfssamningar milli Hestamannafélagsins Geysis og allra sveitarfélaga í Rangárvallasýslu, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra og Ásahrepps. Samningarnir eru til eflingar hestamennsku í íþrótta- og æskulýðsstarfi barna og unglinga í Rangárvallasýslu.

Óhætt er að segja að samningarnir marki tímamót fyrir íþrótta- og æskulýðsstarf Hestamannafélagsins Geysis. Þar sem sveitarfélögin þrjú sjá ekki um rekstur neinna mannvirkja til ástundunnar hestamennsku er gert ráð fyrir að hluti styrksins fari í að greiða fyrir aðstöðu. Samningurinn er til þriggja ára og tók hann gildi 1. janúar 2018.

Nýjar fréttir