-4.8 C
Selfoss

Jólasveinarnir koma á Selfoss í dag

Vinsælast

Í dag augardaginn 9. desember koma jólasveinarnir úr Ingólfsfjalli til byggða og heilsa upp á bæjarbúa og nærsveitunga á torginu við Pysluvagninn á Selfossi.

Dagskráin hefst kl. 15:45 en þá syngur Karlakór Selfoss nokkur jólalög. Kl. 16:00 koma jólasveinarnir akandi yfir Ölfusárbrúna. Þá verður sungið og trallað og haft gaman. Vonast sveinarnir til að sem flestir komi og taki þátt í gleðinni og klæðist jólasveinabúningum eða jólasveinahúfum. Boðið verður upp á frítt kakó.

Ungmennafélag Selfoss mun aðstoða jólasveinana fyrir þessi jól eins og áður og verða þeim innan handar með allt sem snýr að jólasveinamálum. Má þar nefna að taka niður pantanir á jólaböll eða heimsóknir og einnig hina ómissandi pakkaþjónustu, en jólasveinarnir hafa lengi séð um að bera út pakka á aðfangadagsmorgun kl. 10:00–13:00. Tekið er á móti litlum pökkum í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss á Þorláksmessu kl. 18:00–21:00. Nánari upplýsingar og pantanir eru í síma 894-5070 eða í netfanginu umfs@umfs.is.

Random Image

Nýjar fréttir