-5 C
Selfoss
Home Fréttir Skemmtilegt upplestrarkvöld í Bókakaffinu í kvöld

Skemmtilegt upplestrarkvöld í Bókakaffinu í kvöld

0
Skemmtilegt upplestrarkvöld í Bókakaffinu í kvöld
Hallgrímur Helgason rithöfundur.

Það stefnir í skemmtilegt upplestrarkvöld í Bókakaffinu í kvöld þar sem meðal höfunda eru þau Hallgrímur Helgason ljóðskáld og staðarvertinn Elín Gunnlaugsdóttir tónskáld. Að vanda opnar húsið klukkan átta en lestur hefst hálftíma síðar og stendur í klukkustund. Höfundarnir sem fram koma eru annars þessir:

Hákon Behrens með skáldsöguna Sauðfjárávarpið, Halldór Friðrik Þorsteinsson með ferðasögurnar Rétt undir sólinni, Sigurður Karlsson sem les úr þýðingu sinni á Predikarastelpunni eftir Tapio Koivukari, Jónas Reynir Gunnarsson sem les úr skáldsögu sinni Millilendingu, Elín Gunnlaugsdóttir kynnir disk sinn Albúm og Hallgrímur Helgason les úr ljóðabók sinni Fiskur af himni.

Allar bækurnar sem lesið er úr á tilboðsverði og sannkölluð jólastemmning yfir kakóbolla.