7.3 C
Selfoss

Kveikt á jólatrénu í Þorlákshöfn kl. 18 í dag

Vinsælast

Jólatré Sveitarfélagsins Ölfuss verður tendrað í dag 1. desember á Ráðhústorginu, kl. 18:00. Þá verður gengið í kringum tréð, sungið, og sprellað með jólasveinunum sem munu koma í heimsókn. Kórar Grunnskólans í Þorlákshöfn syngja falleg jólalög.

Sú hefð hefur skapast að 1. desember hafa fyrirtæki í Þorlákshöfn verið með svokallaða jólaopnun hjá sér fram eftir kvöldi. Engin undantekning verður á því í ár. Fjölmargt verður í boði, t.d. sala á ýmsum varningi, bókaáritun, lifandi tónlist, tilboð á mat, fatamarkaður og sala á smákökum, kertum og kortum o.fl. Sjá nánar á olfus.is.

Nýjar fréttir