-3.5 C
Selfoss

Eva Banton spilar með liði Selfoss næsta sumar

Vinsælast

Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við miðjumanninn Evu Banton um að leika með félaginu í Pepsi-deild kvenna á næsta keppnistímabili.

Banton, sem er 23 ára gömul, er ekki ókunnug íslenskri knattspyrnu en hún lék með Tindastóli í 1. deildinni síðastliðið sumar og gekk svo í raðir Þróttar R. í júlíglugganum.

Í lok sumars var hún kosin í úrvalslið ársins í 1. deild kvenna af þjálfurum og fyrirliðum deildarinnar, í kosningu Fótbolti.net.

„Ég er mjög spennt fyrir komandi keppnistímabili. Ég á von á því að ef við leggjum hart að okkur þá getum við fest okkur í sessi í Pepsi-deildinni. Eftir að hafa spilað gegn Selfossliðinu síðasta sumar er ég viss um að við eigum möguleika á að standa okkur vel í deildinni. Ef við spilum eins og lið þá munum við ná góðum árangri,“ segir Eva Banton.

Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Selfoss, er mjög ánægður með komu Banton til félagsins:

„Ég heillaðist af henni á vellinum í sumar og er ótrúlega ánægður með að fá hana í okkar raðir. Hún kemur klárlega til með að styrkja okkur innan sem utan vallar. Þetta er hörkuleikmaður sem á eftir að smellpassa inn í umhverfið okkar hér á Selfossi,“ segir Alfreð, í tilkynningu frá knattspyrnudeild Selfoss.

Random Image

Nýjar fréttir