1.7 C
Selfoss

Árvakan rifjuð upp í Selfossbíói

Vinsælast

Síðasti viðburður menningarmánaðarins október þetta árið fór fram sl. laugardag í Selfossbíói þar sem þeir bræður Már Ingólfur og Þorsteinn Tryggvi Mássynir stýrðu „Árvöku“. Árvaka var menningarhátíð Selfossbæjar og var hún haldin fyrst árið 1972 þegar bærinn fagnaði 25 ára afmæli. Við þessi 70 ára tímamót þótti vel við hæfi að líta til baka og skoða með augum dagsins í dag þá atburði og fólkið sem mótaði Selfossbæ.

Þorsteinn og Már munu fóru yfir sögu Selfoss allt frá brúarsmíði og jafnvel lengra aftur og til dagsins í dag. Stikluðu þeir á stóru um söguna og var frásögn þeirra krydduð með innskotum og upprifjunum valinkunnra Selfyssinga sem sögðu frá Selfossi æsku sinnar. Myndefni var frá Gunnari Sigurgeirssyni sem hefur safnað í sarpinn miklu magni myndefnis sem gefur skemmtilega og lifandi mynd af bæ í sífelldri þróun.

Random Image

Nýjar fréttir