1.7 C
Selfoss

Óskað eftir tillögum að áhersluverkefnum á Suðurlandi 2018

Vinsælast

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) kalla eftir tillögum að aðgerðum í byggðamálum frá almenningi, samtökum, fyrirtækjum og stofnunum á Suðurlandi. Áhersluverkefni eru þróunarverkefni sem unnin eru af SASS til að uppfylla markmið og megináherslur Sóknaráætlunar Suðurlands, sem er sértæk byggðaáætlun fyrir landshlutann og hluti af byggðaáætlun fyrir landið allt.

Menningarmál eru líka byggðamál
Helstu málefnasvið Sóknaráætlunar Suðurlands eru atvinnumál, nýsköpun og mennta- og menningarmál. Sem dæmi, þá geta áhersluverkefni verið stærri menningarverkefni, samstarfsverkefni fyrirtækja og/eða atvinnulífs, þróunarverkefni á sviði menntamála eða verkefni til eflingar nýsköpunar innan atvinnugreina eða á sviði menntamála. Verkefnin þurfa að vera í samræmi við markmið landshlutans á viðkomandi málefnasviði. Hægt er að kynna sér markmiðin á heimasíðu SASS, www.sass.is.

Fjölbreytt áhersluverkefni 2017
Til að gefa nánari innsýn í eðli áhersluverkefna kann að vera fróðlegt að skoða heiti áhersluverkefna yfirstandandi árs:

Brotthvarf úr framhaldsskólum                    Málþing um framtíð iðn-, tækni- og verknáms
FabLab verkstæði                                       Menningarkort
Félagsleg þolmörk gagnvart ferðamönnum    Ráðstefna um sjálfbært Suðurland
Innviðagreining                                           Sjúkraþyrlur
Íbúakönnun                                                Skaftárhreppur til framtíðar
Kortavefur Suðurlands                                 Stofnun Ungmennaráðs
Kortlagning umhverfismála                          Hönnun á fræðsluefni fyrir söfn og sýningar
Hægt er að kynna sér betur þessi verkefni, sem og áhersluverkefni fyrri ára, á heimasíðu SASS.

Hægt að senda inn tillögur á vef SASS
Allir geta sent inn tillögur eða hugmyndir að verkefnum í gegnum vef samtakanna á slóðinni; sass.is/ahersluverkefni. Þar er einnig hægt er að kynna sér markmiðin sem koma fram í stefnumörkun Suðurlands sem áhersluverkefnum er ætlað að vinna að. Tillögur að áhersluverkefnum sem unnin verða 2018 þurfa að berast fyrir 21. nóvember næstkomandi.

Einnig er hægt að setja sig í samband beint við undirritaðan (thordur@sass.is) eða ráðgjafa og verkefnastjóra á vegum SASS sem veita nánari upplýsingar og geta aðstoðað við mótun tillagna. Nánari upplýsingar um ráðgjafa og verkefnastjóra á vegum SASS er að finna á heimasíðu SASS.

 

Þórður Freyr Sigurðsson, sviðsstjóri þróunarsviðs Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.

Random Image

Nýjar fréttir