-0.9 C
Selfoss

Dagbókin Jóra er komin út

Vinsælast

Fyrir 26 árum hóf Kvenfélag Selfoss útgáfu Dagbókarinnar Jóru og hefur hún verið aðalfjáröflunarverkefni félagsins síðan. Hópur kvenna vinnur að útgáfunni ár hvert og liggur mikil vinna að baki hverrar bókar. Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir leggja lið með auglýsingum og/eða upplýsingalínum.

Kvenfélag Selfoss styrkir ýmis konar málefni í nærumhverfi sínu. Meðal annars má nefna Heilbrigðisstofnun Suðurlands, leikskólana, Vinaminni og Sjóðinn góða. Á síðasta ári var ákveðið að láta stærstan hluta hagnaðar af sölu Dagbókarinnar Jóru renna til verkefna í þágu eldri boragara á Selfossi.

Ólöf Geirmundsdóttir og Hrafnhildur Sigurgeirsdóttir voru í Krónunni að selja Dagbókina Jóru.

Kvenfélagskonur munu verða í Krónunni á Selfossi í nóvember og fram í desember eftir hádegi á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum.

Einnig er hægt að nálgast bækur hjá stjórn og fjáröflunarnefnd félagsins. Frekari upplýsingar eru hjá Esther Ragnarsdóttur sími 696 9926, netfang joraselfoss@gmail.com.

Random Image

Nýjar fréttir