10 C
Selfoss
Home Fréttir Stálu munum að verðmæti á þriðju milljón króna

Stálu munum að verðmæti á þriðju milljón króna

0
Stálu munum að verðmæti á þriðju milljón króna

Brotist var inn í sumarhús og vélaskemmu í Árborg í liðinni viku og þaðan stolið skotvopni og miklu af skotfærum, verkfærum, húsmunum, fatnaði og reiðtygjum. Áætlað verðmæti þessara muna sé á þriðju milljón króna.

Megnið af þýfinu er fundið og í tengslum við það voru þrír aðilar handteknir með aðstoð sérsveitar og samningateymis Ríkislögreglustjóra í gær. Vegna þess máls er nú unnið að húsleitum á handtökustað viðkomandi og einnig á öðrum stöðum sem taldir eru tengjast meintum brotamönnum.

Grunur leikur á að aðilar þessir tengjist fleiri þjófnaðarmálum liðinna vikna. Skýrslur verða teknar af viðkomandi, eftir því sem húsleitum vindur fram, þegar kemur fram á daginn en ekkert þeirra var í ástandi til skýrslugjafar í gærkvöldi eða nótt.

Úr dagbók lögreglunnar á Suðurlandi.