6.1 C
Selfoss

Bæjarskrifstofur Hveragerðis fluttar í nýtt húsnæði

Vinsælast

Í byrjun síðasta mánaðar fluttu bæjarskrifstofur Hvera­gerð­is­bæjar í nýtt húsnæði að Breiðumörk 20 þar sem Arion banki var áður. Fasteignafélagið Reitir er eigandi húsnæðisins og sér um allar endurbætur þess en leigu­samningur sem í gildi var milli Reita og Hveragerðis­bæjar flyst yfir á nýtt húsnæði.

Undanfarið hafa starfs­menn verið að koma sér fyrir á báðum hæðum hússins og iðnaðarmenn eru enn að ganga frá veggjum, hurðum, skápum og fleiru. Skjalasafnið er smátt og smátt að flytja í stóran kjallara sem er undir öllu húsinu en þar er stefnt að því að hafa allt skjala­safn bæjarins á einum stað.

Með flutningnum hefur störf­um í miðbæ Hveragerðisbæjar fjölgað til muna og meira líf færst í gamla miðbæinn sem bæjarbúar hafa kunnað vel að meta.

Nýjar fréttir