5.6 C
Selfoss

Bókabæirnir austanfjalls bjóða upp á bókagöngu um Eyrarbakka

Vinsælast

Bókabæirnir austanfjalls bjóða upp á skemmtilega og fræðandi bókagöngu um Eyrarbakka á sunnudaginn kemur, 8. október kl. 14 þar sem Magnús Karel Hannesson í Garðhúsum mun leiða gönguna.

Gangan hefst við geymsluhús Bókabæjanna í Læknisbrekkunni á Eyrarbakka – beint á móti dvalarheimilinu Sólvöllum – og lýkur við Húsið á Eyrarbakka eftir að gengið hefur verið um Austur-Bakkann, Mið-Bakkann og Vestur-Bakkann og staldrað við á völdum stöðum.

Magnús mun segja frá skáldum og rithöfundum sem hafa búið á Eyrarbakka eða skrifað um Eyrarbakka allt frá 1200 og fram á þennan dag. Harald G. Haraldsson leikari á Hofi mun lesa stutta kafla eða ljóð úr bókum þeirra skálda og rithöfunda sem fjallað verður um.

Nýjar fréttir