7.3 C
Selfoss
Home Fréttir Kjólarnir kveðja um helgina

Kjólarnir kveðja um helgina

0
Kjólarnir kveðja um helgina
Frá sýningunni „Kjóllinn“ sem staðið hefur yfir í Húsinu í sumar.

Sumarsýningin „Kjóllinn“ sem staðið hefur yfir í Húsinu á Eyrarbakka í sumar er að renna sitt skeið. Verða kjólanir kvaddir með viðhöfn um helgina. Þessa síðustu sýningarhelgi mun skrjáfa í pilsum, stofurnar fyllast af söng og skvaldri og auðvitað verða kjólar út um allt.

Á laugardagskvöldið 30. september mætir dragdrottningin „Tourette Fine“ í stássstofu Hússins og ætti engin að missa af þeim einstaka viðburði.

Í kjólakaffi sunnudaginn 1. október mæta margir góðir gestir; mæðgurnar Bryndís og Kristín sem eiga og reka verslunina Lindina á Selfossi segja bransasögur, Ásta Guðmundsdóttir hönnuður og listamaður sýnir einstakan kjól úr grjóti og rithöfundurinn Guðmundur Brynjólfsson veltir vöngum yfir kjólum og körlum. Kjólabloggarinn Thelma Jónsdóttir mætir í lok dags og sýnir síðasta kjól sýningarinnar. Söngkonan kunna Ágústa Eva Erlendsdóttir og píanistinn Kjartan Valdemarsson, sem hafa slegið i gegn með uppáhaldslögunum hennar ömmu, koma og gleða gesti með flutningi á vel völdum lög úr prógrammi sínu.

Frítt er á alla viðburði kjólasýningarinnar og er tilvalið að grípa tækifærið og sjá þessa litríku sýningu. Kjólar á sýningunni eru bæði úr safneign og frá gestum. Í forgrunni eru kjólar Helgu Guðjónsdóttur og Guðfinnu Hannesdóttur sem eru báðar fæddar snemma á 20. öld, en kjólar frá gestum eru nýir og gamlir, heimasaumaðir eða keyptir. Sjón er sögu ríkari.