1.7 C
Selfoss

Katla jarðvangur og Landgræðslan með samvinnu

Vinsælast

Landgræðsla ríkisins og Katla jarðvangur undirrituðu fyrir skömmu samkomulag með það að markmiði að auka, samhæfa og treysta samstarf stofnananna um sameiginleg verkefni. Tilgangur samstarfsyfirlýsingarinnar er að ná fram samlegðaráhrifum með auknu samstarfi og gagnkvæmum stuðningi stofnananna við þau verkefni sem snúa að land- og náttúruvernd.

Sérstök áhersla er lögð á vernd og uppbyggingu gönguleiða og áningastaða innan Kötlu jarðvangs og að nýta afurðir ASCENT, verkefnis sem Landgræðslan er aðili að ásamt Skaftárhreppi.

Nýjar fréttir