5.6 C
Selfoss

Málþing í Skálholti um kirkjuskipan Kristjáns III. og upphaf siðbreytingar á Íslandi

Vinsælast

Þann 2. september 1537 undirritaði Kristján III. Danakonungur nýja kirkjuskipan. Með þeim gjörningi staðfestist að til var orðin ný kirkja sem tók við af hinni rómversk kaþólsku kirkju í öllum hans löndum og hertogadæmum.

Af þessu tilefni hefur verið ákveðið að halda málþing um kirkjuskipanina og upphaf siðbreytingarinnar á Íslandi í Skálholti hinn 2. September næstkomandi. Málþingið er hluti af dagskrá Skálholts í tilefni af 500 ára afmæli siðbótarinnar sem kennd er við Martein Lúter.

Málþingið hefst klukkan 13:00 laugardaginn 2. september og stendur til klukkan 17:00. Fluttir verða fjórir 25 mín. fyrirlestrar. Fyrirlesarar eru Árni Daníel Júlíusson, (Söguritun um siðbreytinguna. Spjall í tilefni af 500 ára afmælinu), Þorgeir Arason, (Guðsþjónustan og lúthersk kirkjuskipan á íslensku 1541), Guðrún Ása Grímsdóttir (Staðarhald í Skálholti á siðskiptatíma) og Torfi K. Stefánssson Hjaltalín (Gissur Einarsson Skálholtsbiskup, siðaskiptin 1541–1542 og fyrstu ár siðbótarinnar). Á milli fyrirlestranna gefst tími fyrir spurningar og viðbrögð þátttakenda. Málþingi stýrir Kristján Valur Ingólfsson.

Árni Daníel Júlíusson er doktor í sagnfræði og starfar við Þjóðminjasafnið og ReykjavíkurAkademíuna. Þorgeir Arason lauk embættisprófi og MA prófi í guðfræði frá Háskóla Íslands. Hann er nú sóknarprestur í Egilsstaðaprestakalli. Guðrún Ása Grímsdóttir er cand mag í miðaldasagnfræði og rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar. Torfi K. Stefánsson Hjaltalín er doktor í trúfræði og sjálfstætt starfandi fræðimaður.

Nýjar fréttir