Sveitarfélagið Árborg hefur boðað til íbúafundar í Sigtúnsgarði á Selfossi í dag fimmtudaginn 24. ágúst kl. 18:00. Þar verður tillaga að skipulagi nýs miðbæjar kynnt og farið sérstaklega yfir stærð og afmörkun Sigtúnsgarðs.
Að fundinum loknum mun Sigtún Þróunarfélag kynna hugmyndir sínar um uppbyggingu og starfsemi á miðbæjarsvæðinu og bjóða upp á grillaðar pylsur og svaladrykki.