-1.6 C
Selfoss

Fjölbreytt dagskrá á Blómstrandi dögum í Hveragerði

Vinsælast

Bæjarhátíðin Blómstrandi dagar hefst í Hveragerði í dag og stendur fram á sunnudag. Fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir alla fjölskylduna. Þar verður margt í boði eins og t.d. markaðstorg með grænmeti, handverki og bókum og fjölbreyttaum sýningum. Einnig verða opnar vinnustofur og gallerí hjá fjölmörgum listamönnum.

Fjölskyldudagskrá verður í Lystigarðinum þar sem koma fram tónlistarmenn úr bænum, Hljómlistarfélag Hveragerðis, Vegan klíkan, Björgvin Franz og Bíbí, Diskótekið Dísa og Leikhópurinn Lotta. Einnig verður hægt að skemmta sér í veltibílnum, aparólu, vatnabolta, bubble bolta, tívolí og ýmsu fleira.

Ísdagurinn sem verður á laugardaginn hefur ávallt mikið aðdráttarafl og verður án efa gaman að smakka allskyns furðubrögð og tegundir þegar Kjörís heldur sína árlegu hátíð. Þar verður einnig skemmtidagskrá á sviði og kraftakeppni með Hjalta Úrsus. Fleiri þjónustufyrirtæki í bænum bjóða einnig upp á dagskrá.

Vönduð tónlistardagskrá verður alla dagana þar sem m.a. Ágústa Eva, Jónas Sig og Ritvélarnar og Hörður Torfason koma fram.

Hin árlega brenna og brekkusöngur verður í Lystigarðinum á laugardagskvöldinu og stórglæsileg flugeldasýning sem engin má missa af.

Hljómsveitin „Made in sveitin“ leikur síðan á Blómadansleiknum.

Nýjar fréttir