6.7 C
Selfoss

Samstarf um landvörslu á Suðurhálendinu

Vinsælast

Umhverfisstofnun og Vatnajökulsþjóðgarður hafa gert með sér samstarfssamning um landvörslu á Suðurhálendinu í sumar og fram á haust. Þar veita landverðir fræðslu og upplýsingar til ferðamanna um Vatnajökulsþjóðgarð, friðland að Fjallabaki og önnur svæði í nágrenninu. Starfstöðin er í Hálendismiðstöðinni Hrauneyjum og er opin alla daga kl. 9–17.

Einnig sinna landverðirnir svokallaðri vegalandvörslu þar sem þeir eru á ferðinni um Suðurhálendið og veita ökumönnum upplýsingar um verndarsvæðin og nágrenni þeirra og hvaða umgengnisreglur gilda á svæðunum. Vegalandvarsla er mikilvægur þáttur í forvörnum gegn utanvegaakstri sem er mikið vandamál á Suðurhálendinu. Vegfarendur er m.a. upplýstir um mikilvægi þess að ganga vel um náttúruna, aka ekki utan vega og hafa náttstað á skilgreindum tjaldsvæðum. Þessi þáttur starfsins hefur skilað góðum árangri í bættri ferðahegðun gesta á hálendinu.

Nýjar fréttir