10 C
Selfoss
Home Fréttir Með frumstæðar brennslur á lóðinni

Með frumstæðar brennslur á lóðinni

0
Með frumstæðar brennslur á lóðinni
Ingibjörg Klemenz við forvinnu Raku brennslu. Mynd: Helena

Leirlistarkonan Ingibjörg Klemenz er með leirkeraverkstæði og gallerí að Hellugljúfri 2 Ölfusi.

Inga, eins og hún er oft kölluð, var búin að ganga með það í maganum í mörg ár að læra leirlist. Hún hafði sótt mörg námskeið til Steinunnar Marteinsdóttur leirlistarkonu áður en hún lét gamlan draum rætast, þá orðin 36 ára er hún sótti um inngöngu í Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1996. Útskrifaðist hún úr leirlistardeild árið 2000, sem þá var orðin Listaháskóli Íslands.

Inga starfrækti Gallerí Dungu ásamt Gunnhildi Þórarinsdóttur við Gömlu höfnina í Reykjavík  um tíma, þar sem hún var líka með vinnustofu sína.

„Ég flutti í Ölfusið að Hellugljúfri 2 árið 2014 og er þar í dag með vinnustofu ásamt því að reka þar lítið gallerí. Þar gefur að líta ýmis konar handverk bæði eftir Helgu Unnarsdóttur leirlistarkonu og mig,“ segir Inga. Í galleríinu er líka fallegt handprjón eftir ýmsar hannyrðakonur,  ásamt útskurði og ýmsum minjagripum eftir Erlend Magnússon frá Hveragerði.

Helga Unnarsdóttir og Arndís Sveina við brennslu.

„Við höfum verið að Rakubrenna og nýtt okkur hinar ýmsu  brennsluaðferðir  í gegnum árin og núna langar okkur að gefa fólki kost á  að koma og upplifa stemninguna með okkur. Rakubrennsla fer þannig fram að brennt er í gasofni og útkoman getur orðið mjög forvitnileg hverju sinni. Það verður opið sunnudaginn 9. Júlí frá kl. 14-18 og verður þá heitt  á könnunni og auðvitað sól í heiði og sól í hjarta,“ segir Inga glaðlega. Fyrir þá sem vilja kíkja við á sunnudaginn og sjá spennandi brennsluaðferðir leirmuna á lóðinni við Hellugljúfur 2, í  Ölfusinu er ekið inn Hvammsveginn við Gljúfurárholt.

-hs

Við Hellugljúfur er góð aðstaða til útibrennslu á leirmunum.
Alltaf er jafn spennandi að sjá útkomuna úr brennslunni.
Brennt í pappírsofni.