-5 C
Selfoss
Home Fréttir Er einhver stefnumótun í gangi í ferðamálum?

Er einhver stefnumótun í gangi í ferðamálum?

0
Er einhver stefnumótun í gangi í ferðamálum?
Anna Valgerður Sigurðardóttir og Laufey Guðmundsdóttir.

Mikið hefur verið í umræðunni að „engin sýn“ og „engin stefna“ sé í gangi í ferðamálum á landinu. Flestir geta sammælst um að verkefnin séu næg sem fylgja örum vexti og auknum fjölda gesta til landsins og að svo væri í hvaða atvinnugrein sem er sem myndi upplifa slíkt.

Destination Management Plan (DMP) – Stefnumótandi áætlun áfangastaða
Um nokkurt skeið hefur verið í gangi undirbúningsvinna fyrir DMP – Destination Management Plan eða stefnumótandi áætlun áfangastaða á landsvísu, en unnið út frá landssvæðum. DMP er heildstætt ferli þar sem litið er til skipulags og samhæfingar í þróun og stýringu allra þeirra þátta sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna á viðkomandi svæði/áfangastað, þar með talið þarfir gesta, heimamanna, fyrirtækja og umhverfis.

Af hverju DMP?
Með stefnumótandi áætlun fyrir áfangastaðinn Suðurland verður til heildræn stefna sem lýtur að ferðaþjónustunni sem atvinnugrein, sveitarfélögum, íbúum, umhverfi sem og samfélaginu í heild sinni.

Dæmi um atriði sem reifuð eru í slíkri áætlun væru t.d.:

  • Kortlagning þjónustu á svæðinu.
  • Skipulagning á upplýsingaveitu til ferðamanna.
  • Forgangsröðun í uppbyggingu áfangastaða.
  • Áætlun um þann fjölda sem hver og einn áfangastaður innan svæðis getur borið á hverjum tíma.
  • Áætlun um uppbyggingu grunngerðar og stýringu umferðar um svæðið til að lágmarka hættu á því að þolmörkum sé náð.
  • Áætlun um tekjuöflun, gjaldtöku á svæðinu.
  • Áætlanir á sviði gæða-, umhverfis- og öryggismála.
  • Hvað má og hvað má ekki?

DMP áætlun fyrir Suðurland
Ráðnir hafa verið tveir verkefnastjórar til að vinna DMP áætlun fyrir Suðurland sem heild og þrjár aðgerðaáætlanir, byggt á þrískiptingu svæðisins sem lögð var til í markaðsgreiningu á áfangastaðnum Suðurlandi. Svæðin þrjú eru:

  1. Suð-vestur svæði – Árnessýsla, Ásahreppur og Rangárþing ytra
  2. Miðsvæði – Katla Jarðvangur og Vestmannaeyjar
  3. Suð-austur – Sveitarfélagið Hornafjörður/Ríki Vatnajökuls

Verkefnastjórar DMP áætlana á Suðurlandi eru Anna Valgerður Sigurðardóttir, ferðamálafræðingur (anna@south.is), og Laufey Guðmundsdóttir, verkefnastjóri MPM (laufey@south.is). Starfsstöð þeirra verður hjá Markaðsstofu Suðurlands á Selfossi, sem hýsir verkefnið sem er í eigu Ferðamálastofu. Mikil og þétt samvinna verður með öllum svæðunum, þar sem á hverju svæði hafa verið tilnefndir tengiliðir; Suð-vestur svæði Ásborg Arnþórsdóttir, Mið-svæði Árný Lára Karvelsdóttir og Suð-austur svæði Árdís Erna Halldórsdóttir.

Vinnuhópar verða skipaðir á hverju svæði þar sem munu sitja hinir ýmsu hagaðilar svæðisins. Hlutverk og tilgangur vinnuhópanna er að draga fram þá sýn sem hvert svæði vill standa fyrir í ferðamálum, enda mikilvægt að svona verkefni sé unnið á forsendum svæðanna sjálfra. Í hópavinnunni verður meðal annars tekið fyrir; þróun ferðamála í sátt við umhverfið, íbúa og ferðaþjónustuna. Hlutverk verkefnastjóra í hópavinnunni er að vinna úr upplýsingum sem koma fram og nota þær ásamt öðrum gögnum til grundvallar í DMP vinnu fyrir svæðið.

Verkefnið er á undirbúningsstigi þar sem verið er að greina stöðuna eins og hún er í dag. Næstu skref er að mynda vinnuhópa fyrir svæðin og eru þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þeirri vinnu bent á að hafa samband við verkefnastjórana. Stefnt er að því að fyrsti vinnufundur verði haldin að loknum sumarleyfum í lok ágúst/byrjun september.

F.h. DMP verkefnaáætlana á Suðurlandi

Anna Valgerður Sigurðardóttir og Laufey Guðmundsdóttir.