5.6 C
Selfoss

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ á sunnudag

Vinsælast

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í 28. sinn sunnudaginn 18. júní næstkomandi. Hlaupið verður á fjölmörgum stöðum hérlendis sem og erlendis. Markmið Kvennahlaupsins hefur frá upphafi verið að vekja áhuga kvenna á reglulegri hreyfingu. Hver kona tekur þátt á sínum forsendum og lögð er áhersla á að hver kona komi í mark á sínum hraða og með bros á vör.

Nú eru 28 ár liðin frá því að fyrsta Kvennahlaup ÍSÍ fór fram. Hlaupið var haldið 30. júní 1990 í tengslum við Íþróttahátíð ÍSÍ og tóku um 2.500 konur þátt í Garðabæ og á sjö stöðum á landsbyggðinni. Lovísa Einarsdóttir íþróttakennari var einn af frumkvöðlum Kvennahlaupsins og var hún í lykilhlutverki við stofnun hlaupsins árið 1990 og síðar framkvæmd þess. Í dag er Kvennahlaupið einn útbreiddasti og fjölmennasti íþróttaviðburður sem haldinn er á Íslandi ár hvert. Um 15.000 konur tóku þátt á 105 stöðum hérlendis sem erlendis í 25 ára afmælishlaupinu sem fram fór laugardaginn 14. júní 2014.

Það sem er svo skemmtilegt við Kvennahlaupið er að þar koma saman konur á öllum aldri. Mjög algengt er að margir ættliðir, vinkonur eða systur fari saman í hlaupið og geri sér jafnvel glaðan dag í tilefni dagsins. Þó svo að hlaupið heiti Kvennahlaup þá eru karlar að sjálfsögðu velkomnir í hlaupið.

Hlaupið er um allt Suðurland frá Hveragerði austur að Klaustri. Auðvelt er að nálgast upplýsingar um alla hlaupastaði og tímasetningar á Kvennahlaup.is og á Facebooksíðu hlaupsins undir; Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ.

Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í hlaupið heldur bara að mæta á hlaupastað og kaupa sér bol. Þátttökugjald er 1.000 kr. fyrir 12 ára og yngri og 2.000 kr. fyrir 13 ára og eldri.

Nýjar fréttir