7.8 C
Selfoss

Talið að drengur hafi fótbrotnaði við Seljalandsfoss

Vinsælast

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Hellu, Hvolsvelli og undan Eyjafjöllum voru kallaðar út eftir hádegi í dag vegna slyss við Seljalandsfoss. Þar féll ungur drengur um 15 metra í hlíðinni við hlið fossins og er talið að hann hafi fótbrotnað. Drengurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann við Fossvog.

Björgunarmenn voru skjótir á staðinn og þurftu þeir að setja upp fjallalínur til að flytja drenginn niður hlíðina. Alls tóku um 10 björgunarmenn þátt í aðgerðinni auk lögreglu, sjúkraliðs og starfsmanna Landhelgisgæslu.

 

 

 

Björgunarmenn eru komnir á staðinn og eru að sinna drengnum og setja upp fjallabjörgunarkerfi til að nota við að koma honum niður.

Nýjar fréttir