-5 C
Selfoss
Home Fréttir Fögnuður á fardögum í Bragganum í Birtingaholti

Fögnuður á fardögum í Bragganum í Birtingaholti

0
Fögnuður á fardögum í Bragganum í Birtingaholti
Fardagakál eða njóli.

Fögnuður á fardögum er myndlistar- og matarhátíð sem haldin verður laugardaginn 3. júní í Bragganum í Birtingaholti og mun dagskráinn hefjast kl. 14:00. Er þetta í fimmta sinn sem þessi flökkuhátíð er haldin. Góðgresi og Bragginn hafa nú sameinað krafta sína og vinna að ýmsum skemmtilegum verkefnum sem kynnt verða á hátíðinni. Hátíðin er óður til fardagakálsins sem er betur þekkt sem njóli.

Myndlistarmönnum hefur verið boðið að koma og heiðra njólann á hátíðinni, en á síðustu hátíðum hefur verið gerður njólakjóll, njólarapp verið flutt og njólagjörningar. Nú verður spennandi að sjá hvað hátíðin ber í skauti sér þetta árið.

Góðgresi er nú í óðaönn að búa til kræsingar úr njólanum sem boðið verður upp á á hátíðinni, má þar nefna njólasúpu, brauð og pesto. Ásamt því verður mikro kaffibrennslan Kvörn með „pop up“ kaffihús á staðnum með dýrindis kaffi. Þar verður hægt að forvitnast um hvað er nýtt er að gerast í kaffiheiminum.

Nánar um fardagkálið

Þessi fallega jurt hefur fengið slæmt orð á sig í gegnum tíðina, helst vegna þrautseigu sinnar og dugnaðar. Fardagakálið var flutt in á 18. öld og þótti hin mesta búbót fyrir Íslendinga sem margir hverjir þjáðust af skyrbjúg. Þar sem kálið er fljótsprottið og fullt af c-vítamínum var það hinn mesti bjargvættur og dreifðu verkamenn jurtinni með sér þegar þeir fluttust á milli bæja á fardögum og fékk hún þaðan nafn sitt.