6.7 C
Selfoss
Home Fréttir Ferðamaður á reiðhjóli lést

Ferðamaður á reiðhjóli lést

0
Ferðamaður á reiðhjóli lést

Ítalskur ferðamaður á þrítugsaldri, sem fannst meðvitundarlaus á Nesjavallavegi eftir miðjan dag sl. mánudag, hefur verið úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi í Reykjavík. Maðurinn virðist hafa fallið af reiðhjóli sínu á leið sinni um Nesjavallaveg vestan Dyrafjalla og hlotið við það alvarlega höfuðáverka.

Lögregla óskar þess að þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir mannsins um Nesjavallaveg hafi samband í síma 444 2000 eða í tölvupósti á netfanginu sudurland@logreglan.is. Á heimasíðu lögreglunnar kemur fram að ekki sé unnt að gefa upplýsingar um nafn hans að svo stöddu.