0.6 C
Selfoss
Home Fréttir Ölkelduhlaup til minningar um Mikael Rúnar Jónsson

Ölkelduhlaup til minningar um Mikael Rúnar Jónsson

0
Ölkelduhlaup til minningar um Mikael Rúnar Jónsson
Reykjadalur.

Skokkhópur Hamars í Hveragerði stendur fyrir 24 km utanvegahlaupi fimmtudaginn 25. maí n.k. Hlaupa á til minningar um ungan dreng, Mikael Rúnar Jónsson, sem lést af slysförum þann 1. apríl sl. Foreldrar hans hafa verið dyggir félagar í hlaupahópnum og mun allur ágóði hlaupsins renna til fjölskyldunnar.

Hlaupið er allt utanvega og er hlaupið frá Lystigarðinum í Hveragerði, með Hamrinum upp í Reykjadal, umhverfis Ölkelduhnjúk og sömu leið til baka. Nánari lýsing á hlaupinu má sjá á hlaup.is. Hlaupið hefst kl 10 um morguninn.

Forskráning er á hlaup.is og er gjaldið kr. 3.000. Hægt er að skrá sig á staðnum og þá er gjaldið kr. 3.500. Jafnframt mun Skokkhópurinn standa fyrir 5 km hlaupi sama dag sem hefst kl 11 í Lystigarðinum í Hveragerði. Hvetjum við sem flesta til að mæta þar og styðja gott málefni. Skráning í 5 km er á staðnum og er lágmarksgjald kr. 1.000.