6.7 C
Selfoss

Heilsustofnun í Hveragerði vann nýsköpunarverðlaun ESPA

Vinsælast

Heilsustofnun í Hveragerði sigraði í sínum flokki „Innovative Health Spa Program” þegar nýsköpunarverðlaun ESPA, Evrópsku Heilsulindasamtakanna voru veitt við hátíðlega athöfn á aðalfundi samtakanna sem haldinn var í Róm 11. maí sl.

Árlega eru veitt verðlaun til aðila innan samtakanna sem skara framúr og er þetta í þriðja sinn sem Heilsustofnun fær nýsköpunarverðlaun.

Nýsköpunarverkefni Heilsustofnunar snýst um streitumeðferð sem Heilsustofnun býður upp á.  Þetta námskeið er ætlað einstaklingum sem er vísað af læknum til Heilsustofnunar, og eru með alvarleg streitueinkenni eða kulnun.  Alvarleg streita er að verða stöðugt stærra vandamál í íslensku þjóðfélagi sem og víðar í hinum vestræna heimi. Rannsóknir sýna að stærsti hópurinn sem þjáist af alvarlegum streitueinkennum er á aldrinum 45-65 ára. Afleiðingar þess geta haft veruleg áhrif á andlega og líkamlega heilsu og leitt til örorku. Þessi hópur er einnig mikilvægur á vinnumarkaði og er því þjóðhagslega hagkvæmt að styðja við einstaklinga sem þjást af alvarlegum streituvanda.

Það tvennt sem gerir streitumeðferð á Heilsustofnun sérstaka;

– Skjólstæðingar dvelja á Heilsustofnun í fjórar vikur og gefst því tækifæri til að stíga út úr sínu streituvaldandi umhverfi og læra nýjar leiðir til að ná heilsu undir leiðsögn sérfræðinga
– Heildræn þverfagleg meðferð sem einstaklingar fá á Heilsustofnun, mikil fræðsla, viðtöl við lækna, geðhjúkrunarfræðinga eða sálfræðinga, ýmis hreyfing, og holl og góð næring

Heilsustofnun vakti mikla athygli hjá öðrum þjóðum á þinginu og er mikill áhugi á því starfi sem þar fer fram.

Nýjar fréttir