12.8 C
Selfoss
Home Fréttir Sjálfbært Ísland í Hveragerði

Sjálfbært Ísland í Hveragerði

0
Sjálfbært Ísland í Hveragerði
Heilsustofnun NLFÍ hefur í áratugi vakið athygli á hollustu matvæla og lífrænni ræktun og byggir endurhæfingu dvalargesta að stóru leyti á hreyfingu, mataræði og að einstaklingurinn beri ábyrgð á eigin heilsu.

Heilsustofnun NLFÍ, Hveragerðisbær og Landbúnaðarháskólinn að Reykjum hafa samþykkt viljayfirlýsingu um að standa fyrir gerð könnunar á möguleikanum á því að sett verði á stofn upplýsinga- og fræðslumiðstöð um sjálfbæra þróun og lífræna ræktun í Hveragerði.

Verkheitið Sjálfbært Ísland verður vinnuheiti verkefnisins sem hefur þann tilgang að gera Hveragerði og næsta nágrenni að miðstöð sjálfbærni og umhverfisvitundar og að þeirri þekkingu og reynslu verði í framhaldinu miðlað til annarra sveitarfélaga á landinu.

Í yfirlýsingunni segir að við vinnuna skuli lögð áhersla á atriði úr Heimsmarkmiðum Sameinuðu Þjóðanna er snerta meðal annars umhverfið, matvælin, lýðheilsu og orku. Í markmiðunum sem samþykkt hafa verið af Ríkisstjórn Íslands eru 17 áhersluatriði og þar er sjálfbær þróun áberandi þáttur. Í kynningu á þátttöku Íslands í markmiðunum segir m.a.

“Við einsetjum okkur að stíga afgerandi skref til breytinga sem nauðsynleg eru í því skyni að koma veröldinni á braut sjálfbærni og auka viðnámsþol hennar.” Með því skrefi sem stigið er varðandi könnun á möguleikum á upplýsinga- og fræðslumiðstöð um sjálfbæra þróun og lífræna ræktun er komið til móts við þennan ríka vilja ráðamanna til að standast markmiðin. Tilgangurinn er að vista á einum stað á landinu flest það er snertir áætlun hins opinbera um framgang sjálfbærrar þróunar.

Hveragerðisbær hefur stigið eftirtektarverð skref í umhverfismálum. Unnið að markmiðum Staðardagskrár 21 og hefur bæjarstjórn samþykkt metnaðarfulla umhverfisstefnu.

Landbúnaðarháskólinn að Reykjum er einstök stofnun sem þegar hefur á námsskrá lífræna ræktun og er umhverfisvitund þar í hávegum höfð.