6.1 C
Selfoss
Home Fréttir Hjólað óháð aldri

Hjólað óháð aldri

0
Hjólað óháð aldri

Í síðustu viku barst Fossheimum og Ljósheimum hjól sem Styrktar- og gjafasjóður HSU færði hjúkrunarheimilunum að gjöf. Hjólið er rafknúið og sérsmíðað fyrir tvo farþega ásamt hjólreiðarmanni og hluti af alþjóðlega verkefninu Hjólað óháð aldri.

Verkefnið, Hjólað óháð aldri, er samfélagsverkefni þar sem sjálfboðaliðum gefst kostur á að bjóða heimilismönnum Fossheima og Ljósheima í hjólatúr um bæinn. Til þess að gerast Hjólari í verkefninu, þarf að sitja klukkustundar námskeið auk æfinga á hjólinu, með og án farþega.

Föstudaginn 19. maí kl. 13:00–14:30, verður fyrsta námskeiðið og mun Sesselja Traustadóttir verkefnastjóri Hjólað óháð aldri á Íslandi, halda námskeiðið sem er þátttakendum að kostnaðarlausu. Allir áhugasamir um að hjóla og verða hjólarar, eru hvattir til að koma og vera með á námskeiðinu á föstudaginn. Þar prófa nýir hjólarar að hjóla og vera farþegar og Sesselja fer yfir það sem þarf að hafa í huga til að notkun hjólsins verði ævinlega farsæl.

Þá verður einnig formleg afhending hjólsins, ásamt jómfrúarferð þess með fulltrúa heimilismanna Fossheima og Ljósheima.

Næstu vikur munu Selfyssingar verða varir við Hjólara í æfingum og brátt munu heimilismenn Fossheima og Ljósheima sjást í hjólreiðatúrum um bæinn.ininga