7.3 C
Selfoss
Home Fréttir Þorgerður Katrín flytur skrifstofuna á Suðurland í næstu viku

Þorgerður Katrín flytur skrifstofuna á Suðurland í næstu viku

0
Þorgerður Katrín flytur skrifstofuna á Suðurland í næstu viku
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mun flytja skrifstofu sína tímabundið á Suðurland dagana 22.–24. maí næstkomandi. Með ráðherranum í för verður m.a. ráðuneytisstjóri og aðstoðarmenn ráðherra.

Ráðherrann verður með viðtalstíma á Hvolsvelli milli kl. 08:30 og 12:00 þriðjudaginn 23. maí í Pálsstofu í Félagsheimilinu Hvoli, Austurvegi 8, 860 Hvolsvelli. Óskir um viðtöl skulu berast á netfangið gudny.steina.petursdottir@anr.is.

Tilgangurinn með flutningunum er að heimsækja fyrirtæki og stofnanir og styrkja tengsl ráðuneytisins við sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins. Áætlað er að skrifstofan flytji tímabundið út á land þrisvar til fjórum sinnum á ári en í febrúar sl. var hún flutt á Ísafjörð.