-5 C
Selfoss

Selfoss Íslandsmeistari í 4. flokki karla

Vinsælast

Selfoss tryggði sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í 4. flokki karla eldri með sigri á HK.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og bæði lið að spila vel. Staðan í hálfleik jöfn 10-10.

Í seinni hálfleik sigu Selfoss-strákar jafnt og þétt fram úr og náðu átta marka forystu. Leikurinn endaði 29-17 fyrir Selfoss.

Haukur Þrastarson leikmaður Selfoss var valinn maður leiksins en hann skoraði 8 mörk.

Markaskorarar Selfoss:
Haukur Þrastarson 8, Haukur Páll Hallgrímsson 4, Daníel Karl Gunnarsson 4, Þorsteinn Freyr Gunnarsson 3, Daníel Garðar Antonsson 3, Gunnar Flosi Grétarsson 2, Bergsveinn Vilhjálmur Ásmundsson 2, Sölvi Svavarsson 1, Aron Emil Gunnarsson 1

Markaskorarar HK:
Blær Hinriksson 5, Ingólfur Hafþórsson 4, Sigurður Ernir Axelsson 3, Guðjón Valur Ólafsson 1, Kári Tómas Hauksson 1, Styrmir Máni Arnarson 1, Sigurður Guarino 1, Kristján Pétur Barðason 1

Nýjar fréttir