-0.5 C
Selfoss

Torfærukeppni á Hellu um helgina

Vinsælast

Á morgun, laugardaginn 13. maí, halda Flugbjörgunarsveitin á Hellu (FBSH) og akstursíþróttanefnd Heklu 1. umferð Íslandmótsinns í Torfæru. Keppnin sem hefst kl. 11 fer fram á akstursíþróttasvæði FBSH við Gunnarsholtsveg rétt austan Hellu líkt og undanfarin 44 ár.

Undanfarin ár hefur keppnin verið vel sótt, keppendur hafa sýnt svakalegar listir og gríðarleg stemning myndast. Torfærukeppni þessi er skemmtun fyrir alla fjölskylduna og mikið fyrir augað, þar sem ökumenn keppast við að leysa þrautir í sandbrekkum, bröttum klöppum, í fleytingum á vatni og akstri í mýri.

Lögreglan á Suðurlandi verður að sjálfsögðu við hraðamælingar á ánni og verður gaman að sjá hvort heimsmetið í hraðakstri á vatni falli. Sumarveður er í kortunum og keppnissvæðið á Hellu með áhorfendastúkur frá náttúrunnar hendi þannig allir geta látið fara vel um sig í brekkunum.

Allar upplýsingar um keppnina má finna á eventsíðu keppninnar https://www.facebook.com/events/756319781208314/

Keppendurnir sem eru 20 talsinns í tveimur flokkum eru nú í óða önn að leggja lokahönd á bílana sína. Hérna er smá umfjöllun um þá:

 

409 Sveinbjörn Reynisson keppir á bílnum Bazooku sem hann hefur verið að smíða í nokkur ár og er hér mættur í sína fyrstu keppni.

403 Eðvald Orri Guðmundsson hefur verið í toppbaráttunni í götubílaflokki í nokkur ár en aldrei unnið á Hellu. Nú er búið að smíða Túrbínu í Pjakkinn og verður gaman að sjá hvort þetta hafi allan tímann verið kraftleysi í bílnum að kenna eða honum sjálfum.

404 Haukur Birgisson á sínum Þeytingi hefur keppt í götubílaflokknum í nokkur á. Hann hefur gert ýmsar breytingar á bílnum í vetur sem hann ætlar að reyna á Hellu.

405 Steingrímur Bjarnason á Strumpnum hefur keppt í svo mörg ár í torfæru að keppnisstjórinn var ekki fæddur þegar hann byrjaði. Strumpurinn hefur verið sigursæll á Hellu í gegnum árin og er einn sá besti af götubílunum í því að keyra á vatni.

408 Ragnar Skúlason á Kölska er reynslubolti í sportinu. Hann keppti á Galdragul í mörg ár hér á árum áður. Raggi seldi svo bílinn en hélt mótornum eftir. Raggi seldi mótorinn svo í Kölska og hefur Ívar Guðmundsson orðið Íslandsmeistari í nokkur ár með hann í húddinu. Gaman verður að sjá hvort Raggi hafi einhverju gleymt á 15 árum.

110 Arnar Elí Gunnarsson er mættur í sína fyrstu keppni. Hann mun taka sæti Alexanders Más á All-inn. Alltaf gaman að fá nýja keppendur inn, bíllinn farinn að skríða á tvítugsaldurinn og ætti að kunna eitthvað fyrir sér.

77 Ingólfur Guðvarðarson og Guttinn Reborn mæta að venju á Hellu. Í vetur fór Guttinn á dinobekk en hann er notaður til þess að mæla hestöfl í bílum. Nokkuð hefur verið á reiki í gegnum árin hvað torfærubílar eru mörg hestöfl. Oftar en ekki er talað um torfæruhestöfl og eru þau að venju svona 30–50% fleiri en raunveruleikinn segir til um. Dinobekkur segir hins vegar nákvæmlega til um hestöflin sem skila sér til hjólanna og mældist Guttinn, sem er með V8 LQ9 vél og STÓRA túrbínu 936 hestöfl, þannig aað þau ættu að jafnast á við 1500 torfæruhestöfl. Ingólfur stefnir á að komast í allar brautirnar í ár en fyrstu brautirnar hafa tekið toll af Guttanum sem hefur verið í henglum í þeim síðustu í gegnum árin.

87 Elías Guðmundsson keppti í sinni fyrstu torfærukeppni í fyrra en þar fékk hann lánaðann bíl og endaði í 4. sæti. Sportið fangaði hann sem endaði þannig að hann keypti bíl frá Noregi í vetur og er mættu með hann hér til keppni. Bíllinn hét áður Rodeo en hefur fengið nafnið Ótemjan. Þetta er sigursæll bíll og því pressa á Elías að standa sig.

14 Magnús Siguðsson á Kubbi fer aðrar leiðir. Hann er sá eini í sportinu með 4 cyl vél sem er helmingi minni en hinir sem hafa allir 8 cyl. Samt sem áður hjálpar stóra túrbínan þessu upp í svipað mörg hestöfl og hinir hafa og hefur Maggi verið í toppbaráttunni undanfarin ár.

123 Geir Evert Grímsson á Sleggjunni keyrði frambúnaðinn í kássu í síðustu keppni á Hellu og var því lítið með í fyrrihlutanum. Vonandi er að hann sé búinn að smíða hana undir aftur og láti hana hafa það í brekkunum.

66 Guðbjörn Grímsson á Kötlu Turbo á óslegið hraðamet í akstri á vatni síðan 2014. Hann hefur reynt að bæta það sem og margir aðrir en ekki tekist. Bubbi var lítið með í fyrra en mætir nú sterkur til leiks á nýskveruðum bíl.

25 Atli Jamil Ásgeirsson kom nýr í sportið í fyrra þegar hann keypti bílinn Thunderbolt. Hann stóð sig vel í fyrra en breytti bílnum í bát þegar kom að því að fleyta á ánni.

31 Guðmundur Arnarsson á Ljóninu var í gríðarlegri toppbaráttu allt árið í fyrra þar sem hann varð að láta í lægri hlut fyrir Íslandsmeistaranum Snorra Þór Árnasyni. Guðmundur fékk svo Þór Þormar til þess að kaupa bílinn af Snorra og því ætti þetta ekki að vera vandamál í ár.

111 Gestur J. Ingólfsson á Draumnum hefur keppt þær nokkrar keppnirnar á Hellu og Draumurinn sennilega enn fleiri. Draumurinn er að virka mjög skemmtilega og var það einmitt hann sem Elías keyrði í fyrrasumar þegar hann heillaðist af sportinu. Elías stóð sig vel þannig það er pressa á Gesti að gera slíkt til sama.

63 Árni Kópsson á Heimasætunni er mörgum kunnugur. Hann smíðaði hana upphaflega fyrir um 30 árum og hefur hún nánast verið í keppni síðan, Árni hefur þó selt hana og keypt tvisvar og búið er að smíða hana allnokkrum sinnum síðan. Hann hefur verið sigursæll á Hellu og þarf nú að sýna okkur að hann hafi engu gleymt.

113 Birgir Sigurðsson á General Doctornum er vanur að vera með drif á tveimur og keyra á hlið í svokölluðu drifti. Ekki þótti honum nó að vera bara í einu sporti og keypti torfærubíl af Þór Þormari í vetur. Birgir hefur aldrei keyrt torfærubíl eða 4×4 bíl þannig það verður gaman að sjá hver útkoman verður.

16 Haukur Viðar Einarsson gerði sér lítið fyrir í vetur og smíðaði nýjan bíl sem ber nafnið Hekla. Það mætti halda að hún hafi verið hrist fram úr erminni því smíðin hefur gengið hratt síðustu daga og má ætla að það verði lítið sofið næsta sólahringinn.

7 Þór Þormar Pálsson á Thor gerði sér lítið fyrir og keypti bílinn af Íslandsmeistaranum til margra ára. Hann hefur keppt í torfæru í nokkur ár á nokkrum misjöfnum bílum. Ætti að vera kominn á toppinn og þá er bara stýra í gegnum öll hliðin og klára keppnina með stæl.

90 Aron Ingi Svansson á Zombe hefur keppt í nokkur ár í torfærunni. Hann er búinn að elta flóruna og kominn með túrbo. Hljóðin úr Zombe hafa því aðeins skánað en hann skrækti mikið í fyrra. Aron hefur verið að keppa við pabba sinn síðustu ár en þar sem hann er ekki með núna stefnir hann á að vera ofar en hann að stigum eftir daginn.

99 Valdimar Jón Sveinsson á Crash Hard getur ekki ákveðið í hvaða mótorsporti er best að vera. Hann á torfærubíl, rallýbíl, driftbíl og efalaust fleiri. Valdi er á gamla Trúðnum sem hefur keppt í mörg á á Hellu og unnið. Gunnar Gunnarsson sem hefur ósjaldan verið við stýrið á Crash Hard, verður dómari á keppnini, en ætla má að það hjálpi Valda ekki meira en öðrum fyrrverandi keppinautum Gunnars.

Random Image

Nýjar fréttir