8.9 C
Selfoss

Rekstur Rangárþings ytra jákvæður um 187 milljónir króna

Vinsælast

Rekstrarniðurstaða Rangárþings ytra var jákvæð um 187 milljónir króna sem er verulega betra en áætlanir gerðu ráð fyrir. Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2016 var tekinn til seinni umræðu í sveitarstjórn Rangárþings ytra 10. maí sl. og samþykktur samhljóða.

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikninga fyrir þær rekstrareingingar sem falla undir A-hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess það er A- og B-hluta sbr. 60.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Í A-hluta er öll starfsemi sem að hluta, eða að öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk aðalsjóðs er um að ræða eignasjóð og þjónustumiðstöð.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyritækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B-hluta eru leiguíbúðir, félagslegar íbúðir, fráveita, vatnsveita, Húsakynni bs., Rangárljós og Suðurlandsvegur 1–3 hf.

Rekstrartekjur samstæðunnar á árinu námu 1.633.492.000 kr. Rekstrarniðurstaða var jákvæð um 187.073.000 kr. Eigið fé í árslok 2016 var 1.393.805.000 kr.

Nýjar fréttir