9.5 C
Selfoss

Aukasýning á Ævintýrakistunni á Sólheimum

Vinsælast

Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að slá upp aukasýningu á Ævintýrakistunni, laugardaginn 6. maí kl. 14:00 í íþróttaleikhúsinu á Sólheimum. Ýmislegt nýtt á eftir að koma upp úr ævintýrakistunni og heilla fólk upp úr skónum. Það spáir skrítnum sögum, sól og blíðu. Þetta verður lokasýning og síðan ekki söguna meir.

Leikfélag Sólheima hefur undanfarið sýnt Ævintýrakistuna sem er nýtt íslenskt barnaleikrit eftir leikstjórann Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Hann mun einnig bregða sér í búning í lokasýningunni og sýna sínar bestu hliðar. Tónlistina semur Þröstur Harðarson, kokkur á Sólheimum og sprellari.

Í Ævintýrakistunni eru sett saman þrjú þekkt Grimms ævintýri; Gullgæsin, Stígvélaði kötturinn og Brimarborgarhljómsveitin. Rúmur helmingur íbúa og starfsmanna Sólheima koma á einhvern hátt að sýningunni. Mikil aðsókn hefur verið á sýningarnar, mikið hlegið og haft gaman.

Sýningin er í íþróttaleikhúsinu á Sólheimum og tekur um klukkutíma. Miðasalan er í síma 847 5323 eða á www.solheimar.is. Miðaverð er 2.500 kr. fyrir fullorðna og 1.000 kr. fyrir 7-12 ára. Frítt er fyrir 6 ára og yngri. Opið verður í kaffihúsinu Grænu könnunni og Versluninni Völu um helgina.

Nýjar fréttir