7.3 C
Selfoss

Afmælistónleikar nemenda Tónlistarskóla Rangæinga 1. maí

Vinsælast

Tónlistarskóli Rangæinga fagnar 60 ára starfsafmæli skólaárið 2016–2017. Af því tilfeni heldur skólinn nú aðra afmælistónleika sína á skólaárinu þar sem nemendur skólans koma fram. Allt frá þeim yngsta, sem er fjögurra ára og kemur fram með Suzukiblokklautuhóp skólans, til þess elsta, sem er áttræður og lærir á trommur. Segja má að í þessum yngsta og elsta nemenda speglist framtíðarstefna Tónlistarskóla Rangæinga þar sem rík áhersla er lögð á hljóðfæranám yngri barna, kennslu fullorðinna og allt þar á milli. Einkennismerki skólans sem rekinn er af öllum sveitarfélögum í Rangárþingi er, að allir sem þess óska fái notið þess að stunda nám í hljóðfæraleik og söng hjá fagmenntuðum kennurum.

Fyrri hluti tónleikanna þann 1. maí er helgaður ryþmískri tónlist, þjóðlögum, dægurlögum og söngleikjatónlist. Einnig má heyra nemendur kveða og spila á langspil. Unnið hefur verið að því undanfarið ár að byggja upp ryþmíska deild við skólann bæði á Hellu og á Hvolsvelli. Deildin starfar samkvæmt Aðalnámskrá tónlistarskóla. Aukið hefur verði við tækjakostinn i vetur, bæði hljóðfæri og önnur nauðsynlegt tæki til kennslunnar og á tónleikunum 1. maí verður vígt nýtt glæsilegt hljóðkerfi sem skólinn festi kaup á sl. haust. Stefnt er að því að ryþmíska deildin verði opin fyrir alla þá sem vilja leggja stund á ryþmískt nám samkvæmt aðalnámskrá og fyrir nemendur sem leggja stund á klassíkst hljóðfæranám en vilja víkka út þekkingu sína og fá tilsögn hjá fagfólki í ryþmískri tónlist og notkun tækja henni tengdri.

Á þessum tónleikum er það Tónlistarskólanum mikill heiður að fá að njóta þess að heyra nemendur skólans leika á nýjan flygil sem nú stendur í Hvolnum og Rangárþing eystra festi kaup á í vetur. Í tilkynningu segir að þetta glæsilega framtak sveitarfélagsins sé mikils virði fyrir skólann sem og alla sem vilja byggja upp metnaðarfullt tónlistarsamfélag. Einnig sé það afar mikilvægt fyrir kennara og nemendur skólans sem fá afnot af Hvolnum til tónleikahalds reglulega. Síðari hluti tónleikanna er helgaður klassískri tónlist. Þó vissulega séu fleiri en færri píanóverk á dagskránni þá er sá hluti mjög fjölbreyttur og skemmtilegur. Tónleikarnir 1. maí hefjast kl. 16:00 í Hvolnum. Í hléi verður boðið uppá kaffi, köku og að sjálfsögðu tónlist.

Nýjar fréttir