2.3 C
Selfoss
Home Fréttir Vegið að ferðaþjónustunni

Vegið að ferðaþjónustunni

0
Vegið að ferðaþjónustunni
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.

Ferðaþjónustan á Íslandi hefur verið í örum vexti sl. ár. Hún hefur skapað verðmæti fyrir þjóðarbúið og spilað stórt hlutverk hvað varðar endurreisn efnahagslífsins. Alþjóðleg samkeppni er hörð og því mikilvægt að menn séu samkeppnisfærir hvað varðar verð og gæði. Illa ígrundaðar skattkerfisbreytingar ríkisstjórnarinnar munu skaða þessa mikilvægu atvinnugrein.

Þolmörk ferðaþjónustunnar
Sú hækkun á virðisaukaskatti á ferðaþjónustuna sem nú liggur fyrir í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar mun án efa hafa neikvæð áhrif á framtíðaruppbyggingu ferðaþjónustunnar. Ríkisstjórnin telur að þessar skattabreytingar séu tímabærar en engar greiningar liggja fyrir um hvaða áhrif þær muni hafa á atvinnugreinina. Þolir ferðaþjónustan þessar skattahækkanir á sama tíma og krónan hefur styrkst verulega, laun hækkað og gistináttagjald þrefaldast? Ég tel að verðteygnin sé það takmörkuð að ferðaþjónustuaðilar geti ekki velt skattahækkuninni út í verðlagið. Slík hækkun myndi rýra samkeppnisstöðu okkar.

Reynsla Dana
Reynsla nágrannaþjóða sýnir að breytingar á sköttum og gjöldum hafa ekki aðeins áhrif til skamms tíma heldur geta stjórnað aðsókn og afkomu mörg ár fram í tímann. Það hefur til að mynda tekið danska ferðaþjónustu meira en tuttugu ár að ná aftur upp fjölda gistinátta erlendra ferðamanna sem hrundi eftir hækkun á virðisaukaskatti þar í landi árið 1992.

Svört starfsemi og minni gæði
Samkvæmt ríkisfjármálaáætlun mun virðisaukaskattur aðeins hækka á gistingu, ekki veitingasölu. Sú ákvörðun býður upp á skattaundanskot og alls kyns tilfærslur sem skekkja samkeppnisstöðu fyrirtækja, sérstaklega á milli minni og stærri aðila. Ef hægri stjórnin vill einfaldara og skilvirkara skattkerfi, þá er þetta ekki rétta leiðin.
Ég óttast að fyrirhugaðar skattkerfisbreytingar muni ýta undir svarta atvinnustarfsemi. Ég óttast að þeir aðilar sem kjósa að starfa „svart“ í faginu muni ekki hafa sama metnað og leggja jafn mikla áherslu á gæði og þeir sem stunda lögleg viðskipti. Til lengri tíma muni það skaða orðspor og ímynd ferðaþjónustunnar og laskað orðspor er erfitt að endurheimta.
Það er gagnrýnivert að svo hart sé vegið að einni af okkar undirstöðuatvinnugreinum án ítarlegra greininga á langtímaáhrifum.

Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins